Allavegana...

Endilega svarið þessu, langar að vita hvaða álit þið hafið á mér Gasp

Hérna getið þið talið upp kostina mína
Kissing 

http://kevan.org/johari?name=ElsaRut

og svo gallana hérna 
Bandit

http://kevan.org/nohari?name=ElsaRut

Ekki vera hrædd ég bít ekki...








fast
Wink






...

BLÓÐBANKINN!!!!!!!

Núna, er von á blóðbankabílnum í MK á morgun, maður þarf víst að vera orðinn 18ára til að mega gefa blóð, svo ég ætla ekki að gera kröfu um að þið littlu börnin gefið blóð
Joyful

Ég ætla að gefa blóð á morgun, ég meina hvað með það þó maður verði kannski pínu "light-headed" á eftir, ef maður næði að bjarga einhverjum sem þarfnaðist blóðs
Woundering

Ég verð reyndar að segja að ég er ekkert neitt voðalega hrifin af nálum, en svo framarlega sem ég er ekki látin vita þegar nálinni er stungið inn þá gengur þetta vanalega vel
Undecided Ég hef reyndar aldrei gefið blóð áðurFrown  bara farið í svona blóðprufur, náttúrulega ekki sami hlutirinn en 
hey, ég hlýt að lifa þetta af
Shocking  

Planið um helgina var svo flott, að lesa þessar þrjár bækur sem ég fer í próf úr í vikunni
Errm  Ég reyndar endaði á því að lesa eina þeirraBlush  
Tröllakirkju Ólafs Gunnarssonar ágætisbók, söguþráðurinn alveg þokkalega skýr 
og hugmyndin góð, fannst þetta reyndar komið út í svolítið rugl á tímabili, leið svona eins og þegar maður horfir á Tomma og Jenna
FootinMouth  Las hana með svo kölluðum hraðlestri svo nú er bara að bíða og 
sjá hvernig mér gengur í prófinu á miðvikudaginn
Shocking  Undur og stórmerki gerðust um helgina ég skrapp á rúntinn og í bíó, 
já, krakkar mínir kraftaverkin gerast enn
Undecided  Skrapp líka aðeins í Kringluna en við skulum nú ekki ræða þaðShocking

P.S. Mig langar að koma því á framfæri að 
ég sit núna í nát123 og skil minna en rassgat í bala
Undecided   Dagný Björk er stödd hérna hjá mér og 
hún er bara helv. góður félagsskapur... 
Joyful   

P.S.2. Bjarney mín, hættu þessari beiskju út í mína, 
handavinnu hæfileika. 
GetLost
Eins og ég sé þetta er bara tvennt í stöðunni hjá þér, 
að koma til mín og ég kenni þér að prjóna eða 
þá að þú pantir hjá mér það prjónles sem þig vantar 
Halo

Elsa Rut Jóhönnudóttir
Prjónakona 
www.skens.blog.is
elsarut12@hotmail.com
"Prjóna allt sem þig vantar, húfur, peysur,
vettlinga, sokka og typpasokka!"


Jæja...

Verður maður ekki að hlusta og hlýða þegar stóra frænka manns fer að rífa sig,Shocking og meira að segja kemur fram opinberri kvörtun um mann... Crying 

Jú, ég held það sé bara málið... Gasp

hmmm... hvar er best að byrja, skólinn er að komast á fullt skrið núna W00t planið er að lesa sirka þrjár bækur yfir helginaFrown þar sem ég virðist aldrei geta lesið bækurnar þegar á að lesa þær, neei, ég verð alltaf að geyma þær fram á síðustu stundu, jafnvel skemmtilegar og góðar bækur Angry 
bækurnar sem ég þarf að lesa eru Íslandsklukkan Eftir Halldór Laxnes, Angela's Ashes-eftir einhvern írskann gaur, og svo Tröllakirkja eftir Ólaf Gunnarsson... Joyful

Semsagt allt ágætisbækur, bara spurning um að rífa sig upp á rassgatinu og drífa í þessu... GetLost 

Svo er líka kominn tími hjá mér til að byrja aftur að prjóna, ég er með slatta af hugmyndum og hlutum í vinnslu, þarf bara að koma mér í rétta gírinn... Woundering  Ég er búin að vera helber tölvunördi síðustu mánuði og ekki nennt neinu öðru spurning um að draga sig ofurlítið út úr netheimumWhistling 

En já, aftur að skólanum, ég komst að þeirri gleðilegu niðurstöðu, að ég get klárað skólann á þremur og hálfu ári, í stað fjögurra... W00t En auðvitað er lífið ekki eintóm gleði, það er alltaf eitthvað sem hangir á spýtunni... GetLost

Semsagt það sem mér varð skyndilega ljóst er að fyrst ég ætla að klára skólann fyrr en áætlað var,Joyful þá neyðist ég til þess að taka verklegar íþróttir líka á þessari önn Shocking 
 (Bjarney þetta ætti að gleðja þig) ætla síðan að reyna að spjalla við áfangastjórann um 
hvort ég megi ekki taka einhvern annan val áfanga vegna þess að ég féll á fyrstu önninni  Blush ég læt ykkur vita hvernig þessi barátta mín í íþróttunum gengur...
Wink

Jæja, Bjarney, þá er einsgott fyrir þig að tjá þig um þetta blogg mitt...
Bandit

Nýtt blogg!!!

Ákvað að prófa þetta blogg form hjá mogganum, svona bara fyrir forvitnissakir, finnst það reyndar helv. flott... broskallarnir eru magnaðir... Wink

Sjáum til hvort ég röfla eitthvað hérna inná af viti í framtíðinni... Joyful

--kveðja Elsa Rut.InLove


Fyrsta bloggfærsla

Þessi færsla er búin til af kerfinu þegar notandi er stofnaður. Henni má eyða eða breyta að vild.

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband